07júlí

Man down, man down

Jolin eru hopp og jolin eru hi en Hroarskelda er kold og Hroarskelda er blaut.

Getum ekki sagt ad Keldan hafi tekid jafnvel a moti okkur i ar og i fyrra en "the show must go on." Margt hefur gerst sidan sidast var skrifad. Vid tokum a moti Agli i Frankfurt med iskalda Jägermeister flosku i Jägermeister kaelikassa og storan mida sem a stod "Herr M. Ballack." Stutfylltum svo Renaultinn af toskum, karlmonnum og mannalykt og keyrdum af stad. Keyrdum beina leid til Berlin thar sem vid skiludum bilnum. Hittum Einar pabba hans Valla thar en hann var buinn ad scouta eitt hostel fyrir okkur. Thegar komid var upp a hostel forum vid ad huga ad thvi hvernig vid aetludum ad koma okkur til Koben. Lestin kostadi 130 evrur a mann (sem er bara gedveiki) og allar rutur voru uppbokadur ut manudinn. Tha for einhver ad paela hvort thad vaeri ekki bara odyrast ad taka bilaleigubil... Thegar ad var gad kostadi bara rett rumar 100 evrur ad leigja bil i einn dag. Frabaert vid skelltum okkur ad sjalfsogdu a thad og forum svo ut ad borda. Kinverskt vard fyrir valinu og mikid rosalega var gott ad komast i TsingTao bjor aftur. Eftir mat var farid a hostelid. Daginn eftir thegar vid aetlum ad picka up bilinn faum vid thaer frettir ad starfsmadurinn kvoldid adur hafi gleymt ad reikna med ad vid aetludum ad skila bilnum i Køben. Verdid a bilnum fjorfaldadist vid thetta en samt var thad odyrara en lestin. Aetludum samt ad reyna ad  taka annan bil Danmerkur megin, keyra aftur til Thyskalands og skila thessum bil thar og storgraeda. Eftir ad hafa trodid 5 karlmonnum (sumum helmossudum), 10 bakpokum og gitar inn i litinn VWGolf (ef thad eru til einhver verdlaun fyrir verkfraedi og vid erum ekki tilnefndir fyrir thetta tha faer einhver ad finna fyrir thvi) keyrdum vid af stad ad landamaerunum. Eftir ad hafa leitad ut um allt ad bilaleigu i stodum eins og Abenraa og alika storborgum var su akvordun tekin ad keyra til Køben en thar hofdum vid thak yfir hofudid hja foreldrum Dora sem voru med ibud. Thegar thangad var komid var tekid a moti okkur med grillveislu og odrum godum veitingum. Thar sem vid vorum nu degi a undan aaetlun akvadum vid ad koma Joni, Nonna, Gunna og Jolla a ovart en tha attum vid ad hitta daginn eftir a Løven. Vid bjuggumst vid ad their vaeru eldhressir a Den Glade Gris ad tjutta en eftir otrulega lumskt simtal komumst vid ad thvi ad their vaeru a Løven ad slappa af. Vid lobbum thvi thangad og aetlum ad rydjast inn a herbergid theirra. A leidinni sagdi einhver "Djofull vaeri fyndid  ef vid mundum maeta theim a leidinni."  Svo stoppum vid a raudum kalli, hverja sjaum vid hinumegin vid gotuna adra en  Gunna , Nonna og Jon. Otrulega gaman ad sja strakana og mikil fagnadarlaeti brutust ut uti a horni fyrir utan Sleven. Til ad fagna thessu var ad sjalfsogdu farid og kikt a vin okkar, kokhausinn i Sleven fyrir utan Løven. Keyptum bjor og med thvi og forum upp a herbergi til ad bregda Jolla. Eftir chat og bjor kiktum vid a grisinn og donsudum thar til lokadi, svona korter. Nu var komid ad Hroarskeldu... Thegar vid tjoldudum a sunnudeginum var svaedid blautt en ekkert alltof slaemt. Vid drifum okkur svo i baeinn a Hereford til ad halda upp a afmaeli Nonna. Thegar vid maettum a svaedid daginn eftir mikil drulla og nog var ad gera i ad endurreisa campid okkar sem hafi fokid til og brotnad. Gledin var nu samt i fyrirrumi eins og alltaf a Hroa og enginn let neitt a sig fa. Vedrir naestu daga for versnandi og nadi hamarki a fimmtudeginum thegar solarhringsrigning og vindur sem hefdi getad gert borgarstjorann skollottann hafdi dunad a okkur voru nokkrir ordnir taepir a ad meika thetta. Setningar eins og "Eg er buinn ad pakka og fer um leid og eg vakna" og "Eg fer med ther" dreifdust med vindinum um allt svaedid a medan Bjork song um tilfinningarikt landslag. Flestir hofdu nu roast morguninn eftir og adeins einn af okkur yfirgaf tjaldsvaedid. Joi hafdi fengid nuddsar eftir gummistigvelin a fyrsta degi og nu var kominn syking i allt saman og hann ordinn stoltur bakteriubonda med staersta akur sinn a haegri okklanum. Honum hundleidist thvi nuna einum i Køben og hefur ekkert ad gera. Kannski hann raki sig loksins...
Nu fer ad lida ad heimkomu og tha er ekkert letilif lengur heldur bara beint i vinnu.
Kvedjur a Klakann fra København og Roskilde...
07. júlí 2007 klukkan 12:20

14 athugasemdir
27júní

... svo their toku ser einn til vidbotar.

Tha er allt gengid komid til Thyskalands eftir ad hafa keyrt i gegnum Frakkland, Sviss, Italiu, Lichtenstein og Austurriki. Vid kvoddum Gydu a manudaginn eftir otrulega nice (haha ordaleikur) dvol hja henni. Dagarnir i Nice foru i ad tana, drekka og dansa en thad er nu einmitt thad sem vid hofum gert mest af i ferdinni. Vid viljum thakka Gydu enn einu sinni fyrir ad hafa hyst okkur og lifad ad tafyluna okkar. Einnig viljum vid bidja hana ad hafa opin augun fyrir hlidarspeglinum okkar en honum var stolid i Nice, Gud blessi Frakka.



Aksturinn i gegnum Evropu hefur verid nokkud lettur, serstaklega fyrir Joa sem ma ekki keyra vegna ungs aldurs. Mikid stress var nu samt a leidinni fra Gydu thvi vid urdum ad na til Sviss fyrir klukkan sex thvi vid hofum engin vegabref thannig ad ef vid lentum i veseni tha thyrfti raedismadur okkar i Nice ad sperra sig vid landamaeraverdina. Vid maettum a landamaerin 5 min. i sex og var bara veifad i gegn, allt thetta stress ut ad engu. A leidinni i gegnum Evropu for svo oll okkar tungumalakunnatta i hafragraut. Vid pontudum baguette a Italiu og sogdum svo danke vid afgreidslukonuna thvi naest forum vid alveg i minus i Sviss thvi allt var borgad i fronkum en thegar thad reddadist tha kvoddum vid med ciao. Okkur tokst nu samt ad gera okkur skiljanlega og allt gekk bara vel, engar bilveltur eda brotnar rudur a thessari leid.



Eins og adur sagdi tha erum vid komnir til Thyskalands og gistum hja foreldrum Valla. Storlega efast eg um ad vid gaetum haft thad eitthvad betra. Heit supa, braud og sturta sem er svo kroftug ad hun gaeti klofid a manni herdablodin er einmitt thad sem vid thurftum. I gaer forum vid svo ut a flugvoll og sottum Villa. Okkur fannst vid thurfa ad gera eitthvad serstakt fyrir hann thar sem vid hofdum ekki sed hann sidan i mars thannig ad vid dressudum okkur allir upp i klaedskera saumada jakka og gallabuxur og bidum eftir honum vid hlidid med skilti sem a stod ,, Herr Malik Großschlange". Thad var horft a okkur eins og halfvita a flugvellinum en fyrir tha sem ekki vita thad tha er Friederikshafen flogvollurinn a staerd vid Reykjavikurflugvoll og thvi vorum vid frekar kjanalegir tharna. Thad voru miklir fagnadarfundir ad hitta Villa og tilhlokkunin til Hroa tvofaldadist. Vid sendum thvi bara kvedju heim fra fjosinu, husid sem vid gistum i er 50/50 ibudarhus og fjos, og nu er seinasti sens fyrir folkid heima ad byrja ad plana homecoming party fyrir okkur. Egill og Hroarskelda a nestunni!!!!!!!
27. júní 2007 klukkan 13:07

4 athugasemdir
22júní

Sönnunargögn

Jæja, það eru sumir ekki alveg að trúa okkur með þetta. Hérna koma sönnunargögnin.



Svona komum við að bílnum okkar.






Jói að taka mestu glerbrotin saman.


Núna erum við bara að skemmta okkur hjá Gyðu í Nice. Það er tónlistarfestival hérna í Nice og að sjálfsögðu fórum við að skemmta okkur í gær.



Hérna erum við saman með Gyðu og Guðnýu


Annars skrifum við eitthvað að viti fljótlega.

.....................................................................
22. júní 2007 klukkan 18:46

7 athugasemdir
20júní

Bonjour!

Jæja, það hefur gengið á miklu hérna hjá okkur í Evrópu. Við lentum morguninn 17. júní í Frankfurt. Eftir lítinn svefn í flugvélinni röltum við á milli bílaleiga með allann okkar farangur, sem vegur meira en hundrað kíló. Eftir að hafa spurt á nokkrum leigum um verð fengum við frábært tilboð hjá Sixt bílaleigunni. Mercedez Benz B-class, við höfðum aldrei heyrt um þess týpu en hann var nógu stór fyrir allt draslið okkar og komum við Villa og Agli líka í bílinn þegar þeir bætast við hópinn. Einnig er bílinn með GPS, sjálfskiptur og dísel, sem sparar okkur þvílíkt bensín. Allt þetta á 450 evrur í tvær vikur, það er ekki neitt. Við hoppuðum upp í bílinn stilltum GPS-ið á miðbæ París og brunuðum af stað. Tölvan sýndi að það voru 570 km í Parísar.



Um þrjúleytið vorum við komnir til Parísar. Við lögðum bílnum í bílastæðahús og röltum aðeins um miðbæinn. Eftir að hafa fengið upplýsingar á Tourist Information um hostel, fengum við nokkuð mikið sjokk yfir verðinu. Bakpokagisting kostaði 21 Evru fyrir einn í eina nótt. Fyrir sama verð hefðum við geta fengið bakpokagistingu í mánuð í Phnom Penh. Við ákváðum að fá okkur bjór eftir að hafa heyrt þessi ótrúlegu verð, okkur hlyti að líða betur eftir það. Nei,nei, nei, fyrir einn stórann bjór borguðum við 9 evrur. Við skelltum honum í okkur og fórum svo beint að hostelinu. Þar vorum við svo heppnir að fá herbergi fyrir 3 þannig að við vorum einir með það. Við ákváðum ferðaplönin og ákváðum að vera bara eina nótt í París, taka einn góðann túristadag, skoða allt, og fara svo um eftirmiðdaginn og gista einhverstaðar sunnar, þar sem vonandi væri ódýrara.

Mánudagurinn byrjaði vel, við tékkuðum okkur út af herberginu settum bílinn í bílageymslu og byrjuðum svo að rölta. Við skoðuðum Louvre safnið vel að utan, og röltum svo að Sigurboganum. Splæstum meira ad segja ferð fyrir okkur upp á toppinn. Eftir það var borðað Baguette, skoðað Eiffel turninn og Notre Dame. Eftir langan dag úti í sólinni voru Dóri og Valli orðnir Redneck (brenndir á hnakkanum). Við fórum aftur í bílastæðahúsið tilbúnir að leggja í hann út úr París, en þegar við komum að bílnum var sáum við að búið var að brjóta afturrúðuna. FUCK,FUCK FUCK. Það var búið að ræna okkur feitt. Nýju fartölvur strákanna horfnar, allir þrír I-podarnir, debetkortið hans Valla, passarnir hjá Jóa og Valla, síminn hans Dóra, sólgleraugu, tvö úr, einhverjum fötum, sexþúsund íslenskar kr. í tælenskum peningum og margt margt margt fleira. Já einhverjir frakkir Frakkar eru að halda upp á jólin núna. Það tók okkur nokkra tíma að fá lögregluskýrslu fyrir tryggingarnar og þegar við byrjuðum að telja upp hverju hefði verið stolið þá sagði lögreglan bara: ,,Shit´´. Eftir að hafa talað við lögregluna hringdum við á bílaleiguna og tilkynntum þetta. Eftir nokkur símtöl þar á milli komumst við að því að þeir áttu engan lausan bíl í París en vildu gera við rúðuna í þessum bíl morguninn eftir og buðust til að senda dráttarbíl til okkar. Jói afþakkaði það í símann þar sem við vorum með GPS tæki og gætum fundið þetta léttilega. Eftir að hafa fengið staðsetninguna á verkstæðinu gekk okkur ekkert að finna þetta í tækinu. Við hringdum aftur og sögðumst ekki geta fundið þetta, þeir hringdu svo aftur í okkur og svona gekk þetta í svona klukkutíma. Eftir mjög undarlegan símtalsfund sem fór að mestu fram á frönsku á milli bílvirkjans og bílaleigukallsins og Dóra, komumst við að því að verkstæðið væri ekki í París heldur áttum við að fara hraðbrautina A4 til  Metz. Þegar Valli stimplaði nýju hnitin inn í GPS-ið þá byrjaði tækið strax að vísa okkur leiðina. Það skrýtna var að Metz er borg við þýsku landamærin, 360 kílómetra frá París. En já, loksins fann tækið staðinn og við lögðum af stað klukkan tíu um kvöldið. Þegar við höfðum keyrt í sirka 3 tíma með enga afturrúðu komum við að Mets. Þá rumskaði Valli og sagði að nú væri best að fara að stimpla götu heitið. GÖTU HEITIÐ. Þá sagði Valli að tækið hefði ekki fundið þetta í fyrstu þannig að hann hefði bara stillt á miðbæinn í Metz. Að sjálfsögðu fann tækið ekki götuna aftur því það var engin gata með þessu nafni í Metz og nú voru við út í rassgati klukkan tvö um nóttina með enga afturrúðu. Eftir annað símtal við bílaleiguna hjá kallinum á næturvaktinni sem talaði mun betri ensku fundum við út að við áttum að taka hraðbrautina A4 sem liggur til Metz bara fimm kílómetra, síðan áttum við að beygja að einhverju úthverfi Parísar sem hét eitthvað allt annað. Eftir einfalda hjálp við að stimpla þetta inn i GPS tækið fann það götuna strax. Verkstæðið var í 340 kílómetra fjarlægð, við höfðum semsagt keyrt 340 kílómetra of langt. Ég hafði keyrt alla leiðina og strákarnir sofnaðir þannig að það var ekkert annað í boði en að kaupa sér orkudrykk, stilla á FM euro trash og keyra til baka. Við komum að verkstæðinu um 5 um nóttina og þá gafst smá tími til að leggja sig. Já 700 kílómetra akstur alla nóttina kostaði okkur 100 evrur í Bensín og vegatolla. Við sluppum nú við að borga gistingu þannig að þetta kom ekki það ílla út. En lúðaskapur hjá okkur öllum, Jói að neita að fá dráttarbíl, Dóri að misskilja kallinn svona feitt og Valli að stimpla bara miðbæ Metz inn í draslið.



Svona var billinn okkar þegar vid komum ad honum, þetta er samt ekki hann. Okkar var miklu flottari! Þegar verkstæðið opnaði skildi enginn ensku. Eftir smá tíma kom kall frá Sixt bílaleigunni í París og vissi ekkert hvað við vorum að gera þarna. Eftir að hafa sagt honum söguna alla þá taldi hann ómögulegt að gera við bílinn á einum degi og var þvílíkt vesen að fá nýjan bíl því það var enginn laus og náðum við að fá einhverja sport týpu af Ford Focus, þótt að þessi bíll var miklu verri en við höfðum verið á þ.e.a.s. minni bíll, ekkert GPS, beinskiptur og ekki dísel sættum við okkur við hann þar sem kallinn fullvissaði okkur um að við gætum skipt og fengið betri og stærri  bíl í Marseille. Og þá var spólað af stað. Þar nú voru 700 kílómetrar á leiðinni til Marseille. Það var nokkuð skemmtilegt að keyra alveg niður mitt Frakkland. A midri leid einhverstadar voknudu Dori og Joi vid karmannlegt oskur Valla. Þa sveigdi Valli rett svo framhja veltandi bil og framhja odrum sem skaust a milli vegridanna eins og kula. Badir bilarnir tveir sem voru fyrir framan okkur skullu semsagt saman og annar valt og tok 5 veltur a veginum. Allt gerdist thetta a 130 km. hrada. Thad munadi sirka 4 metrum a ad annar for i okkur. Vid saum samt okumanninn klifra thokkalega omeiddur ur bilnum sem valt og letti okkur thvilikt af thvi. Thetta var svona eins og i James Bond mynd eda eins og atridid a  brunni i Bad Boys 2. Hedan af verdur farid varlegar i thetta.
Við stoppuðum stutt í bænum Dijon en við vorum strax sendir í burtu í lögreglufylgd  þar sem allir bæjarbúar vildu slátra Jóa fyrir að hafa beðið um sætt danskt pylsusinnep (den dejlige dansk pölse sinep). Um 8 leytið komum við loksins til Marseille. Við byrjuðum á að skipta um bíl. Það tók ótrúlega langan tíma þar sem konan vildi ekki gefa okkur stærri bíl. Loksins fengum við bílinn, Renault Megane station. Við fórum semsagt af Benz í Ford Focus sport í Renault station. Hvar er réttlætið í þessu? Á stationinum fundum við hótel hérna í Marseille og erum núna búnir að rölta um alla borgina í dag.

Síðan er það Nice á morgun það verður mjög afslappað. Gyða ætlar að splæsa þaki á okkur og kynna okkur fyrir sænsku píunum sem eru að leigja með henni. Mér skyldist líka að vinkonur sænsku stelpnanna ætli líka að gista þarna á sama tíma þannig að þetta verður bara eitt stórt partý.

Nú er komið gott af þessu, vonandi hafið þið nennt að lesa alla þessa steypu.


20. júní 2007 klukkan 18:28

9 athugasemdir
16júní

Til hamingju með gráu hárin!!!

Við viljum bara óska honum Valla okkar a.k.a. Homo Tanimalus til hamingju með afmælið. Árin líða og vöðvarnir stækka en þú ert alltaf jafn mjúkur ad innan hlustandi á "Essential love songs" fyrir svefninn. Við vonum ad afmæli í Bahrein sé eitthvað sem þú átt eftir að muna eftir.






Afmælisbarnið á afmælisdaginn

p.s. tekkid a faerslunni hja afmaelisbarninu her fyrir nedan.
16. júní 2007 klukkan 16:35

9 athugasemdir
16júní

Med sandinn i augunum i Bahrein

,,Bahrein, hvad er thad?'' hugsa flestir sem heyra nafnid getid i fyrsta sinn. Eg skal sko segja ykkur thad ad Bahrein er eyja i Persafloa. Landid er a staerd vid Myrdalsjokul eda fyrir tha sem thekkja thann agaeta jokul ekki, eins og 60 Snaefellsjoklar. Thegar vid forum i hradbanka herna faum vid greitt ut i oliutunnum thvi landid er fokrikt af oliubraski. Her bua um 700.000 manns af alls kyns stofni og uppruna en um helgar flykkjast hingad thusundir araba fra Sadi-Arabiu til ad fa ad gudlasta i fridi, thvi ad her i Bahrein er ekki ologlegt ad drekka afengi, olikt nagrannarikjunum i kring. Annad markverdugt vid Bahrein er ad her opnar allt kl. 4 eftir hadegi vegna obaerilegs hita solarinnar a daginn, hotelin eru fokdyr, Michael Jackson og Jenson Button hafa att hus herna, her er formulubraut og engar konur sjaanlegar utandyra. Aetli thaer verdi ekki ad vera i fylgd karla sinna til ad fa ad fara ut, en karlarnir nenna ekkert ad hafa thaer med svo thaer eru allar inni allann daginn og goturnar thvi fullar af kollum. Vid hofum sed thonokkra karlmenn leidast herna og maetti alykta ad su hegdun se bein afleiding af kvennmannsleysinu a gotum eyjunnar. Annars erum vid mjog fafrodir um hegdun, sidi og tru araba a thessum slodum, svo hver veit..??



Adur en vid komum hingad i eydimorkina "eyddum" vid fjorum dogum i Bangkok. Adalmarkmidid var ad versla i naestseinasta sinn i ferdinni thvi allt er ju svo billigt i Thailandi. Vid fengum allir jakkafotin okkar sersaumudu afhent eftir vandadar matanir i nokkra daga hja ymsum klaedskerum borgarinnar. Nidurstadan vard trodfull jakkafatataska med thrennar buxur, sex jakka, thrju bindi og ellefu skyrtur. Taskan, sem vid tokum med i handfarangur til ad sleppa vid yfirvigt, er a staerd vid litinn asiubua. Svo gerdumst vid Joi svo frakkir ad kaupa okkur nyja gemsa og fartolvur fyrir erfid namsar sem eru framundan. Fengum svaka flotta HP Pavilion dv2315txi med windows og mus og meira ad segja flottri hledslusnuru! Nyja astin i lifi okkar.
Kao Sarn Road er alltaf som, party alla daga thar til logreglan kemur og bokstaflega spular folkid af gotunni til ad fa thad til ad hunskast heim. Vid saum einn breta ganga berserksgang a gotunni, kyldi framrudur ur tveimur tuk-tukum a medan hann oskradi,,I'm on a holiday!!!''. Svo nadu fimm logreglumenn honum og yfrirbugudu greyid og handtoku hann. ,,I'm on a Holiday''!!!
Eftir fjora dyra og goda daga vorum vid reidubunir i ad kvedja Asiu sem hefur fylgt okkur og tekid vel a moti okkur i 3 manudi. Thegar vid komum a flugvollinn stod Bahrein- cancelled...Thad kom i ljos ad velin i Bahrein myndi ekkert koma thannig ad bida thyrfti eftir annarri vel fra Kuala Lumpur. Aetli velin hafi ekki verid oliulaus i Bahrein. Fyrir vesenid var okkur skutlad a eitthvad svaka-svaka hotel til ad fa hadegismat. Vid okkur blasti (og brosti) flottasta hladbord sem vid hofum sed lengi. When in Rome, hugsudum vid og atum a okkur gat. Loftur og Svadilfararnir hefdu ekki att sens i okkur Jackie Chan felaga tharna. Flugid seinkadi nu ekki nema um sjo tima thannig ad enginn okkar for ad grenja.
I flugvelinni saum vid ( Eg og Dori allavega, Joi gat ekki horft i fridi utaf kallinum hlidin a honum sem flautadi svo hatt i nefinu thegar hann svaf) myndina Shooter med Markie Mark. Hun var omurleg...



I Bahrein letum vid leigubilstjorann finna handa okkur eitthvad odyrt hotel midsvaedis. Vid endudum a faranlega flottu hoteli, fyrir 35 arum! Hotelid var eins og klippt ut ur mynd fra 1970. Engu hafdi verid  breytt tharna fra upphafi sem gerdi thetta alveg kostulegt. Doldid ommulegt en huggulegt. Fyrsti dagurinn for i konnunargonguturinn sem hefur verid fin rutina hja okkur i ferdinni. Um kvoldid heldum vid svo ut i myrkrid til ad fagna afmaeli minu, Til hamingju! Jeij. Flott ad eiga afmaeli i Bahrein. Fengum okkur ad eta a F1 club. Ein mesta skemmtun sem vid hofum sed! Stadurinn er med somu cover-hljomsveitina 6 daga vikunnar. Inni a stadnum vorum vid thrir, um 100 bandariskir snaggadir hermenn sem kunnu ekkert annad lysingarord en fucking awesome! Ef ekki hefdi verid fyrir thessar 60-70 vaendiskonur sem voru tharna bokstaflega inna milli, hefdi thetta verid skrautlegasta pulsuparty sogunnar. Thetta var svo mikil klisja ad fylgjast med thessum monnum fa utras. Vid horfdum uppa fimmtuga yfirmenn herstodvarinnar i hvitum jakkafatabuxum dansa vid undirspil Justin Timberlake, tiu hermenn ad slast um einu bandarisku stelpuna a dansgolfinu og i leidinni laga a ser oakley solgleraugun. Saum einnig gaur sem var alveg eins og Ruud van Nistelroy og Nick Cave i samblandi. Arabar ad dansa heitann dans hvorn vid annann, enn og aftur voru konurnar heima. Sattir og anegdir gengum vid svo heim um tvoleytid i sandstormi og 35 stiga hita...
Nuna sitjum vid a Starbucks med nyju flottu, glaesilegu, undurfogru fartolvurnar sem lita ut eins og formulubilar og chillum thvi vid hofum ekkert hotelherbergi. Fljugum "heim" til Frankfurt eftir 6 tima as we speak. Adalafangi ferdarinnar alveg ad klarast, sorglegt og gledilegt i senn thvi thad eru godir dagar og endurfundir framundan. Svo byrjar Hroarskelda eftir tvaer vikur!

kvedja, einn ad ganga thritugt...loksins :-)

PS. Erum að reyna að vinna Egil í löngum bloggum, gengur bara nokkuð vel.

16. júní 2007 klukkan 16:06

4 athugasemdir
09júní

Aftur i Bangkok

Eftir tveggja vikna dvöl i suður Tælandshafi erum við komnir aftur til Bangkok. Við eigum flug til Barein á miðvikudagsmorgun, þannig að þetta verður bara búðarráp og rólegheit þangað til. Klukkan er núna 05:30 hjá okkur og erum við að bíða til klukkan 6 annars þurfum við að borga fyrir þessa nótt líka. Alltaf að spara.
Við kvöddum strákana í hádeginu í dag, við erum hálfstressaðir um þá, vitum ekki alveg hvernig þeir eiga eftir að höndla það að vera einir, það verður bara að koma í ljós. Annars hafa dagarnir á Koh Tao verið mjög rólegir. Balli og Loftur skelltu sér á meirapróf í köfun, við ákváðum hinsvegar að spara peningin og sleikja sólina með Pétri. Seinasta kvöldið var síðan haldið matarkeppni milli liðana. Valli keppti fyrir hönd The Jackie Chan Gang en Loftur var fyrir Svaðilvöðlurnar. Við urðum að játa okkur sigraða í þetta sinn. Það var bara ótrúlegt hvað drengurinn borðaði.







En nú er það Bangkok, Jói er búinn að dunda sér við að gera innkaupalista seinustuvikurnar. Hann er nú þegar búinn að fylla heila stílabók og er ennþá að koma með hluti sem honum vantar, t.d. fyndið sérsaumað bindi sem er 40 cm breitt og í skærum litum, pípuhatt og brauðrist sem er líka fjarstýring. Já eins og þið sjáið þá eru þett allt lífsnauðsynlegir hlutir. Kallarnir eru samt allir búnir að panta sér sérsaumuð jakkaföt. Við verðum helvítiflottir þegar við komum heim.



Svo er það Barein á miðvikudaginn, vitum ekki alveg hvað við erum að fara út í þar. Þetta var svona flipp hjá okkur (Dóra og Jóa) að stoppa í Barein í 3 daga við létum ekki Valla vita af þessu strax og vorum svona að spá í að hafa þetta svona surprise. Þjóðhátíðardaginn lendum við síðan í Frankfurt og spólum strax af stað til Parísar. Eftir París förum við síðan til Nice og ætlum að nýta okkur gestrisni Gyðu. Hún var reyndar að segja okkur þær (hræðilegu) fréttir að hún er ekki lengur að leigja ein heldur með tvemur sænskum stelpum, við verðum víst að láta okkur hafa þetta.

Já mánuður eftir hjá genginu og örugglega erfiðasti mánuðurinn. Í Evrópu kostar dýrasta steikin á matseðlinum ekki 400 kr heldur 4000 kr. Já þetta á eftir að vera munur en þetta hlýtur að takast hjá okkur, annars höldum við bara tombólu einhverstaðar í Þýskalandi. 75% af ferðinni búið, þá er bara að nýta seinasta fjórðunginn í botn. Fólk er mikið að spyrja okkur hvort við séum ekki búnir með öll umræðuefnin eftir að hanga saman í 3 mánuði, en við finnum alltaf eitthvað að tala um hvort sem það
sé um klónun hraðsýkjandi visnuveirustofns K-1772 eða Niturnámsbakteríur og belgjurtir. Held að það sé best að ég hætti núna er kominn með góðann galsa hérna.

Ciao

09. júní 2007 klukkan 23:32

7 athugasemdir
07júní

Vid fundum NEMO!!!

Tha er afsloppunin hafin. Eftir brjalaedi Full Moon partysins tokum vid bat a naerliggjandi eyju, Koh Tao, og tha fyrsta sem vid gerdum var ad skra okkur a kofunarnamskeid. Fengum thennan sama leikthatt og venjulega thegar vid skradum okkur a kofunarresortid. Gaurinn byrjar a ad gefa okkur upp eitthvad faranlega hatt verd og vid segjum ,,No, that's too expensive, the other guy said cheaper" . Tha dregur hann okkur ut ur lobbyinu (sem er toluvert afrek thvi vid erum med risabakpoka a bakinu) og segir i mun laegri rom ,, OK, I have to give you that price but don't tell anyone else because you get the cheapest. No guest gets that low price". Merkilegt hvad vid faum alltaf bestu verdinn og alltaf naum vid ad semja um special price, gott daemi um thad er thegar Valli pruttadi svo mikid i Peking ad solukonan for ad grata.
    Thid getid ekki truad thvi hvad thad var erfitt ad setjast inn i skolastofu og hefja lestur um edlisfraedina a bak vid kofun eftir ad hafa ekki opnad skolabok i rumlega ar. Kennarinn okkur gerdi thetta reyndar frekar audvelt fyrir okkur en okkur til mikillar anaegju tha var hun bikini-stelpan sem vid vorum nybunir ad glapa a a strondinni. Boklegu timarnir voru virkilega lettir en thad gat verid frekar erfitt ad einbeita ser ad kennslunni thegar utsynid ut um gluggan var gullin strond med kokteil bar. Eftir boklega timan var okkur bara hent ut i djupu laugina, ekki bokstaflega reyndar thvi vid byrjudum grynnra megin i lauginni. Baldur sa um ad utdeila verkefnum fyrir hopinn med thvi ad missa VISA-kortid sitt a botninn svo vid thurftum ad kafa eftir thvi. Af hverju hann tok kortid med ser ofan i laugina er okkur enntha hulin radgata. Tilfinningin ad geta andad i vatni er snilld en utsynid i lauginni var ekkert serstakt, plastrar og drukknadar flugur eru svo sem alveg skemmtilegar en med timanum urdum vid othreyjufullir i ad komast i sjoinn og sja eitthvad lifandi. A thridja og fjorda degi namskeidisins fengum vid svo ad kafa i sjonum. Eg held vid seum allir sammala um ad thetta se med thvi flottasta og fallegasta sem vid hofum augum litid. Beint fyrir framan okkur voru skjaldbokur, alar, bladoppottar skotur, litlir NEMO fiskar og margt margt fleira. Petur var svo heppinn ad sja hakarla en hann var i advanced hop og matti thvi fara dypra en vid hinir. Allt gekk thetta ad mestu leyti slysalaust fyrir sig thratt fyrir nokkur atvik hafi skelft okkur litillega eins og thegar surefniskutar Joa og Dora losnudu og thegar Valli og Loftur voru bitnir margoft af pinu litlum fiskum sem lifa a daudu skinni.

    

 Rigurinn a milli hopana tveggja fer sivaxandi og braust ut pool-mot a veitingastad herna a eyjunni fyrir tveimur dogum. 5 stig voru veitt fyrir sigur, auk thess sem eitt stig var gefid fyrir hverja kulu sem andstaedingurinn atti eftir. Thad var naestum thvi erfitt ad horfa upp a greyid Svadilfarana nidurlaegda a thennan hatt en Jackiechan-hopurinn gjorsigradi tha 16-0. Til gamans ma geta ad motid for fram i thonokkrum metrum a sekundu og smavaegilegri urkomu sem hlytur ad thykja frekar spes fyrir pool-mot.
   

    Eins og stadan er nuna vitum vid eiginlega ekkert hvad vid eigum af okkur ad gera. Vid munum kvedja Svadilfarana a sunnudaginn en thangad til hofum vid ekkert planad. Aetli vid chillum ekki bara herna og fylgjumst afram med thessu storfurdulega lidi sem er herna. Ein kona a resortinu hefur vakid serstaka katinu innan hopsins. Thessi kona likist svolitid Nonnu ur Brakula greifa teiknimyndunum ef einhver man eftir theim nema thessi er bara med rasssitt rautt har, talar hollensku og oskrar ,,Lunchtime" af og til. Ja, thad er fatt skemmtilegra en ad tala tungumal sem enginn skilur (islensku) og tala um allt folkid i kringum sig. 

Skilum kvedju til Islands med von um ad landslidid rifi sig upp a rassgatinu svo vid getum haett ad afsaka okkur vid alla sem vid hittum herna i Taelandi. Heimurinn er ad hlaeja ad okkur.  
07. júní 2007 klukkan 07:33

7 athugasemdir
02júní

Solbrennt fullt tungl

Tha er ljuffeng og god vika a Kho Phangan komin a enda, en onnur vika a annarri eyju ad hefjast. Vid komum hingad a sunnudag fra Bangkok eftir 10 tima rutuferd og 3 tima batsferd. Strax fyrsta kvoldid var haldid ut a vit naeturlifsins til ad fagna 21 ars afmaeli Dora. Kallinn tok sig til og baud okkur ollum a thvilika sjavarrettaveislu sem slo heldur betur i gegn. Meira ad segja matvondu braedurnir letu sig hafa tad ad smakka eina raekju med hvitvininu. Eftir mat var haldid ut a gotu sem virtist heldur tomleg og roleg. Stefndi i ad kvoldid myndi enda med sma vonbrigdum, en svo handan vid naesta horn blasti vid okkur halfnakid og stridsmalad folk i trylltum og villtum dans i sandinum a strondinni. Stemningin nadi undir eins ad gripa okkur og vid helltum okkur i reifid. Thar sem vid erum ekki alveg nogu vanir svona strandreifi tha vissum vid ekki alveg hvernig madur hegdar ser a svona stad og stund. Afleidingarnar urdu thaer ad vid eydilogdum nyju myndavelina okkar og skemmdum fotin i glimu og hrugu i sjavarmalinu. Fengum okkur islenska fanann maladann a oxlina, nema Loftur sem mundi ekki hvernig faninn var thannig ad hann fekk einhverja algjora vitleysu sem liktist samblandi af finnska og norska fananum. Hann er nu bara a odru ari i rafmagnsverkfraedi thannig ad thetta er afsakanlegt.
Her eru party alla daga fram ad solaruppras eda thar til "hitt" folkid kemur og aetlar i solbad.
Vid saum fljott fram a thad ad vid myndum seint meika svona vitleysu i heila viku thannig ad vid akvadum ad reyna ad spara okkur fyrir hid eina sanna Full Moon Party. Dagarnir herna foru i vespu/dirtbike-tura um eyjuna og solbad og strandarlif almennt. I gaer skelltum vid okkur allir a velhjol og keyrdum a hinn enda eyjunnar. Thar var farid i bogakeppni med fleiru. Bogakeppnin er eitt af fjolmorgum einvigum Jackie Chan-hopsins og Svadilfaranna, eins og their vilja kalla sig. Keppnin var hnifjofn og urdum vid i JC ad jata okkur naumlega sigrada af Svodluvodlunum. Adeins munadi einu stigi. Dori vard tho stigahaestur og vard thvi Loftur sem vard stigalaegstur ad borga fyrir hann. Vid brunudum svo heim i grenjandi skyfalli sem refsadi eins og loftbyssukulur a bera leggi og hendur okkar. Heima beid eftir okkur Full Moon Party-id margromada sem allir a eyjunni voru bunir ad trekkja sig upp fyrir alla vikuna.

Partyid var gedsjukt! Vid urdum svo sannarlega ekki fyrir vonbrigdum. Strondin var trodfull fra 9 um kvoldid fram ad 8 morgunin eftir. Staersta party sem vid hofum sed. Nokkur thusund manns a sundskylu og bikini, sveiflandi glowsticks, dansandi vid aerandi trans og techno og hoppandi i gegnum logandi hringi og sippubond. Thad var oft erfitt ad sja hvort vaeri fullari, folkid eda tunglid.
Thvilik skemmtun! Ekki beint thessi Nautholsvikurstemning eins og heima.

Vid skellum inn nokkrum godum myndum fra thessum einstaka viburdi. You-tube er blokkad herna i Thailandi thannig ad myndbondin standa a ser thar til vid komum til Bahrein.
Joi hondladi ekki harid lengur og fekk thad thvi ad fjuka, ,,Ha, Nei!!'' oskra 86% lesenda sidunnar samkvaemt sidustu skodanakonnun. Hann var bara ordinn threyttur a thvi ad alls kyns ruslalydur for ad heilsa honum reglulega a strondinni. Svo var harid lika ordid fullt af sandi. Hann er thvi aftur ordinn "leidinlega" fjallmyndarlegur og saetur. Flott framtak engu ad sidur. Once in a lifetime vonandi.

Kvedja JC

02. júní 2007 klukkan 12:26

19 athugasemdir
31maí

Flaming Snúsnú

Jebb

Kallarnir komnir aftur á ströndina. Það þekkir enginn Valla lengur, fólk heldur að hann komi frá svörtustu Afríku. Hann tekur taninu svo alvarlega ad hann vaknar klukkan 7:30 til að fara í sólbað kemur síðan aftur um sex af ströndinni. Já þetta er rútínan hjá honum. Við erum semsagt núna komnir á eyjuna Koh Phangan....


Vá var stoppaður þarna af stráknum sem er að vinna hérna á hótelinu. Var með klukkutíma langan landafræðitíma um Ísland og Evrópu. Fólk hérna er alltaf til í að spjalla við mann um allt og ekkert. Allstaðar kallar fólk til okkar HELLO þegar við löbbum framhjá, það er oftast eina orðið sem það kann í enskunni, um að gera að nýta útlendinga og æfa sig að segja það.

En já fólk er mun vanara að sjá útlendinga hérna enda erum við á mesta túristastað á Tælandi. Þessi strönd er ein af frægustu partý stöðum í heimi, fólk kemur saman á ströndinni á kvöldin, tónlistin er blöstuð í hæsta styrk og haldið er þvílíkt partý. Við erum að tala um að fólk kaupir ekki drykk í glasi hérna það kaupir fötu, já þú ferð að fötusalanum og biður um fötu af rom í kók, eða vodka redbull. Sumir í hópnum voru ennþá vanir standardinum eins og hann er á sólon, þar sem nokkrir dropar af vodka eru settir í drykkinn og skelltu heilu fötunum í sig eins og þeir væru að drekka vatn. Þegar menn voru búnir með nokkrar fötur tóku barþjónarnir upp snúsnú band, settu oliu á það og kveiktu í því, síðan var farið í flaming-snúsnú. Það kviknaði í nokkrum en ekkert alvarlegt, get ekki séð samt þetta fyrir mér á Islandi, venjulega eru grillin okkar gerð upptæk af lögreglunni, þá má víst ekki kveikja varðeld í því. En hérna er engin lögregla til að stoppa það. Toppnum verður síðan náð á morgun þegar haldið verður FULL MOON PARTY. Þessi djömm sem við höfum farið í hingað til er víst bara brot af því sem gerist þá.

Jamm, er orðinn þreyttur á að vera í tölvunni, farinn út í 30° hitann

Já, kveðja til Jóns B. Kallinn var að útskrifast seinustu helgi með fullt af frábæru fólki sem hefur pottþétt tekið vel á því á laugardeginum.

Seinna


31. maí 2007 klukkan 09:21

6 athugasemdir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvernig komumst vid allir fyrir i odyrasta og minnsta bilaleigubilnum sem faest i Evropu???